Styrkur



Flugmódelfélag Suðurnesja var einn af þeim fjölmörgu aðilum sem hlutu styrk á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar fyrir árið 2010 en þeir var útdeilt í Stapanum, í gær, þriðjudaginn 25.maí. Að ofan má sjá mynd af þeim sem tóku við styrkjunum en formann voran má finna vinstra megin við miðju í miðröðinni.

Fréttatilkynning frá Reykjanesbæ fylgir hér að neðan.

Árleg úthlutun styrkja úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar fór fram í Stapa í gær  en þar voruafhentir styrkir og gengið frá samningum fyrir samtals 30 milljónir króna.

Hlutverk Manngildissjóðs er að veita fjárhagslegan stuðning, styrki og viðurkenningar til verkefna á sviði fræðslu, fjölskyldu- og forvarnarmála, menningar- og lista, umhverfismála, tómstunda- og íþróttamála eða til stuðnings verkefna í þágu mannræktar og aukins manngildis í Reykjanesbæ.

Undir Manngildissjóð falla m.a.: Íþróttasjóður, Tómstundasjóður, Listaverkasjóður, Menningarsjóður, Þróunarsjóður skóla, Forvarnarsjóður og Umhverfissjóður.

Við athöfnina var jafnframt skrifað undir samninga við menningar-, íþrótta- og tómstundafélög.

Manngildissjóður var stofnaður árið 2003 og hefur síðan verið stærsti einstaki styrktaraðili manngildisverkefna í Reykjanesbæ og þó víðar væri leitað. Yfirstjórn sjóðsins er í höndum Bæjarráðs Reykjanesbæjar en úthlutun fjármagns til einstakra verkefna er í höndum viðkomandi fagráða og nefnda á vegum bæjarfélagsins.

Að þessu sinni er gengið frá úthlutun að fjárhæð 30 milljónir króna sem skiptist þannig:
Til íþróttamála 12 milljónir
Þróunarsjóður skóla 5,8 milljónir
Menningarsjóður 4,5  milljónir
Tómstundasjóður 2,9 milljónir
Forvarnarsjóður 3,8  milljónir
Umhverfissjóður 1 milljón

Alls 76 verkefni fá úthlutun úr sjóðnum að þessu sinni en stjórn sjóðsins mun ákveða frekari úthlutun úr sjóðnum í tengslum við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010.

Upplýsingar og tenglar

Hér eru upplýsingar um póstinn og tilvísanir í hann.


Aðrir póstar